Fóstrur styrkja Umhyggu á útskriftarafmæli

Á dögunum komu fóstrur færandi hendi til Umhyggju og færðu félaginu styrk að upphæð 75.000 krónur í tilefni þess að 50 ár eru síðan þær útskrifuðust úr Fóstruskóla Sumargjafar. Það gerðu þær jafnframt í minningu útskriftarsystra sinna þeirra Ingibjargar Njálsdóttur og Sigrúnar Snævarr sem fallnar eru frá.

Við þökkum þeim innilega fyrir stuðninginn og óskum þeim til hamingju með hálfrar aldar útskriftarafmælið!