Viðvera á skrifstofu Umhyggju verður takmörkuð á komandi vikum vegna flutninga, en í júní munum við opna á nýjum stað.
Við hvetjum því alla til að heyra í okkur annað hvort símleiðis í síma 5524242 eða í gegnum tölvupóst á umhyggja@umhyggja.is. Þannig getum við mælt okkur mót ef hentar eða veitt ráðgjöf og þjónustu með aðstoð tækninnar. Athugið þó að tekið er á móti öllum bréfpósti á Háaleitisbraut 13 þar til annað verður tilkynnt.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á nýjum stað í sumar!