Alþjóðleg könnun á óskum og smekk barna þegar kemur að inntöku lyfja

Undanfarnar vikur hefur Umhyggja verið í samskiptum við vísindamenn frá University College London (UCL) sem hafa í samstarfi við EPTRI (European Paediatric Translational Research Infrastructure ) búið til könnun sem ætlað er að heyra raddir barna um allan heim hvað varðar lyfjainntöku, þ.e. í hvers konar formi/bragði o.s.frv. börn myndu helst kjósa að taka lyf.

Þátttakendur eru börn undir 18 ára, bæði þau sem taka lyf að staðaldri/daglega og börn sem taka almennt ekki lyf nema í einstaka tilvikum.

Svörin verða notuð til að bæta þróun lyfja ætlaða til inntöku af börnum út frá þeirra smekk og óskum. Þátttaka er auðvitað valfrjáls, könnunin tekur um 5 mínútur og hægt er að fylla könnun út sjálf/sjálfur eða í samvinnu við foreldri. Könnunin er nafnlaus, viðkvæmum persónuupplýsingum verður ekki safnað og allar niðurstöður eru að sjálfsögðu trúnaðarmál.

Við hvetjum alla krakka, hvort sem þeir taka lyf að staðaldri eða ekki, til að taka þátt.

Könnunin

Tengiliður könnunarinnar er Elisa Alessandrini, elisa.alessandrini@ucl.ac.uk