Ævintýri í Jólaskógi með bættu aðgengi

Þann 10. næstkomandi stendur Umhyggja í þriðja skipti fyrir sérstökum sýningum á Ævintýri í Jólaskógi með bættu aðgengi, nú í samstarfi við Sjónarhól, Þroskahjálp, ÖBÍ og Gló stuðningsfélag. Sýningin hentar öllum sem þurfa bætt aðgengi, hvort sem um er að ræða börn eða fullorðna.

Sýningar hefjast á 10 mínútna fresti og tekur hver leiksýning um það bil klukkkutíma. Áhorfendur ferðast í litlum hópum um Elliðaárdalinn, vopnaðir vasaljósum og hitta á ferðum sínum persónur úr jólafjölskyldu okkar Íslendinga. Miðaverð er niðurgreitt og kostar hver miði því 1.000 kr. Frítt er fyrir börn undir 2 ára. Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri og mæta með vasaljós.

Aðkoman er við Rafstöðina í Elliðaárdal/Elliðaárstöð - Rafstöðvarveg 6, 110 Reykjavík.

Hægt er að nálgast miða á hlekknum hér að neðan. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!