Aðalfundur Umhyggju færður til 9. júní

Aðalfundur Umhyggju – félags langveikra barna verður haldinn 9. júní næstkomandi, kl.17.00, á Grand Hotel Reykjavík. Alls geta 45 manns sótt fundinn og gerir rýmið ráð fyrir að hægt sé að hafa 2 metra fjarlægð auk þess sem ítrustu sóttvarna verður gætt. Fundinum verður streymt, en athugið að ekki er hægt að greiða atkvæði nema mæta á staðinn. Óskað er eftir því að þeir félagsmenn sem hyggjast sitja fundinn skrái sig á vefsíðu Umhyggju, https://www.umhyggja.is/is/skraning-a-adalfund svo hægt sé að áætla fjölda og gera viðeigandi ráðstafanir vegna kosningar verði aðsókn mikil. Nánari upplýsingar um streymið verða birtar á heimasíðu Umhyggju þegar nær dregur, www.umhyggja.is. 

Laus sæti til kosningar eru tvö sæti fagmanna.

Tillögur að framboðum í stjórn Umhyggju skulu berast eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund, (2. júní í síðasta lagi) á skrifstofu Umhyggju, umhyggja@umhyggja.is og til formanns stjórnar, regina.lilja.magnusdottir@reykjavik.is

Tillögur að lagabreytingum skulu berast skrifstofu Umhyggju eigi síðar en 21 degi fyrir aðalfund (19. maí í síðasta lagi).

Við vekjum athygli á því að aðeins þeir sem eru félagsmenn og hafa greitt félagsgjöld a.m.k. 14 dögum fyrir aðalfund (26. maí í síðasta lagi) hafa atkvæðisrétt.