Aðalfundur Umhyggju 12. júní kl.17:00

Aðalfundur Umhyggju – félags langveikra barna verður haldinn fimmtudaginn 12. júní næstkomandi, kl. 17.00, í húsnæði Umhyggju, Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Laus sæti til kosningar erueitt sæti áhugamanns, tvö sæti fagmanns og þrjú sæti foreldra.

Tillögur að framboðum í stjórn Umhyggju skulu berast eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund (5. júní í síðasta lagi) á netfang skrifstofu Umhyggju, umhyggja@umhyggja.is.

Tillögur að lagabreytingum skulu berast skrifstofu Umhyggju eigi síðar en 21 degi fyrir aðalfund (22. maí í síðasta lagi).

Við vekjum athygli á því að aðeins þeir sem eru félagsmenn og hafa greitt félagsgjöld a.m.k. 14 dögum fyrir aðalfund (29. maí í síðasta lagi) hafa atkvæðisrétt.

Fyrir hönd stjórnar Umhyggju,

Jón Kjartan Kristinsson, formaður