Aðalfundur Umhyggju

Aðalfundur Umhyggju – félags langveikra barna verður haldinn 11. júní næstkomandi, kl.16:30, í húsnæði Umhyggju, Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Laus sæti til kosningar eru tvö sæti fagmanna.

Tillögur að framboðum í stjórn Umhyggju skulu berast eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund (4. júní í síðasta lagi) á skrifstofu Umhyggju, umhyggja@umhyggja.is og til formanns stjórnar, jon.kristinsson@danfoss.com.

Tillögur að lagabreytingum skulu berast skrifstofu Umhyggju eigi síðar en 21 degi fyrir aðalfund (21. maí í síðasta lagi).

Við vekjum athygli á því að aðeins þeir sem eru félagsmenn og hafa greitt félagsgjöld a.m.k. 14 dögum fyrir aðalfund (28. maí í síðasta lagi) hafa atkvæðisrétt.

Með bestu kveðjum

Stjórn Umhyggju