Kærar þakkir fotbolti.net

Fótbolti.net stóð á dögunum fyrir keppni um bestu vítaskyttu Íslands.  Tæplega 200 manns tóku þátt en allur ágóði af keppninni rann til Umhyggju, félags til stuðnings langveikum börnum.

Alls söfnuðust 242 þúsund krónur og í dag var farið með upphæðina til Umhyggju.

Að auki fékk Umhyggja bolta að gjöf frá adidas en í verðlaun í vítakeppninni voru skór og boltar.

Stefnt er á að hafa vítaspyrnukeppnina aftur að ári og hafa hana þá ennþá veglegri.

Frétt af vefnum www.fotbolti.net