Aðalfundur Umhyggju verður 15. maí kl.20

Aðalfundur Umhyggju verður haldinn 15.  maí næstkomandi, kl.20.00, í húsnæði félagsins að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.
Tillögur að framboðum til setu í stjórn Umhyggju skulu berast eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund, (8. maí í síðasta lagi) á skrifstofu Umhyggju,  umhyggja@umhyggja.is og til formanns stjórnar, ingolfur@greining.is . Við vekjum athygli á því að aðeins þeir sem eru félagsmenn og hafa greitt félagsgjöld a.m.k. 14 dögum fyrir aðalfund (1. maí í síðasta lagi) hafa atkvæðisrétt.
Vonumst til að sjá sem flesta.