Helgina 11. - 12. mars verða haldin þrjú námskeið Systkinasmiðjunnar í Reykjavík ætlað systkinum langveikra barna. Smiðjunar eru ætlaðar bæði þeim sem hafa aldrei komið í Systkinasmiðju sem og þeim sem hafa komið áður.
Yngri hópur 8-12 ára hittist kl. 10:00 - 13:00 báða dagana.
Eldri hópur 12-14 ára hittist kl. 13:30-15:30 báða dagana.
Unglingahópur 14+ ára hittist kl. 16:00 - 17:30 báða dagana.
Smiðjurnar verða haldnar á Háaleitsbraut 13, 4. hæð.
Umhyggja niðurgreiðir námskeiðin að stórum hluta en sá kostnaður sem kemur í hlut hverst þátttakanda er kr. 2000. Greiðsluseðill er sendur í heimabanka forráðamanns eftir að skráning á sér stað.
Laus pláss í hvrerja smiðju eru 12.
Við hvetjum systkini langveikra barna hiklaust til að skrá sig!