Umsókn um styrk

ATHUGIÐ:  Til að hægt sé að afgreiða umsóknir þarf vottorð að hafa borist.

Foreldri sem hefur langveikt barn á framfæri sínu getur sótt um styrk úr styrktarsjóðnum enda eigi viðkomandi í fjárhagslegum erfiðleikum sem rekja má til veikinda barnsins. Skilyrði er að foreldrið sé  í einhverju af aðildarfélögum Umhyggju eða eigi beina félagsaðild að Umhyggju. Styrkjaupphæð árið 2024 er kr. 850.000. Sækja má um tvisvar sinnum en 12 mánuðir þurfa að líða að lágmarki milli styrkveitinga. Athugið að eingöngu er greiddur út styrkur vegna eins barns á hverju 12 mánaða tímabili í þeim tilfellum þar sem um fleira en eitt langveikt barn er að ræða. Styrktarsjóðurinn gefur sér að hámarki 6 vikur til að yfirfara umsóknir eftir að öll gögn/vottorð hafa borist. Skilyrði er að umsókninni fylgi staðfesting á greiningu á sjúkdómi eða fötlun frá lækni og þarf vottorðið að berast í gegnum umsóknarformið eða beint á skrifstofu Umhyggju. 

Sjá nánar úthlutunarreglur Styrkarsjóðs Umhyggju.

 

almennur styrkur - umsóknarform

ATH. Til að hægt sé að taka umsóknina fyrir þarf læknisvottorð að liggja fyrir. Vinsamlegast merkið við hvort það sé hengt við umsókn eða verði sent í pósti.

Upplýsingar um inn á hvaða reikning skuli leggja styrkinn

Samþykki

Ég samþykki að Umhyggju sé heimilt að vinna persónuupplýsingar um mig og barn mitt með vísan til 10. gr. persónuverndarlaga nr. 90/2018 sbr. 6.-8. gr. reglugerðar (ESB) nr. 2016/679.

captcha