Vaðlaborgir
Tvö sumarhús í nágrenni Akureyrar til afnota fyrir félagsmenn Umhyggju
Dvöl í íslenskra náttúru er unaðsleg og hvergi er betra að öðlast smáhvíld frá dagsins önn og erfiðleikum. Umhyggja hefur yfir að ráða tveimur orlofshúsum í Vaðlaborgum, fallegri orlofshúsabyggð sem risið hefur við Eyjafjörð, gegnt Akureyri. Þangað geta félagar í Umhyggju og aðildarfélögum félagsins farið allan ársins hring og notið hins góða aðbúnaðar sem boðið er upp á í orlofshúsunum um leið og þeir njóta náttúru fegurðarinnar við Eyjafjörð. Húsin eru vel búin og aðgengi að þeim er gott fyrir fatlaða. Veröndin er stór og góð og á henni er heitur pottur. Þeir sem dvalist hafa í Vaðlaborgum segja staðinn, húsin og allan aðbúnað eins og best verður á kosið. Aðsókn að orlofshúsunum hefur verið góð yfir sumarið en rétt er að benda fólki á að þar er engu síður ánægjulegt að dveljast að vetrarlagi. Í Eyjafirði er útivistarsvæði skemmtilegt vetur, sumar, vor og haust og skammt undan er Hlíðarfjall með tæki sem gerir fötluðum kleift að renna sér í snjónum.
Annað húsanna er með sérstökum búnaði fyrir fatlaða og hreyfihamlaða, m.a. sjúkrarúmi og hreyfanlegri sjúkralyftu. Húsin eru vel staðsett í Vaðlaheiði gegnt Akureyri. Ekki tekur nema örfáar mínútur að aka þaðan á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en það er lykilatriði svo unnt sé að nýta húsin fyrir langveik börn, sem geta þurft á bráðaaðstoð að halda.
Þeim félagsmönnum sem hafa hug á að taka húsin á leigu er bent á að hafa samband við skrifstofu Umhyggju, s. 552-4242.

