Kata – litla lirfan ljóta textuð fyrir heyrnarskerta
Söfnuninni vel tekið
Þeir sem vilja fá textað eintak af ævintýrinu geta sent sitt eintak af diskinum til Caoz hf., Ægisgötu 7, 101 Reykjavík, og fá þá sent annað textað eintak í staðinn.
Þau 11.000 heimili, sem óska að fá ekki fjölpóst sendan heim til sín, hafa skiljanlega ekki fengið sumargjöfina. Þeir, sem eru í þeim sporum en vilja engu síður fá eintak af diskinum, geta sent tölvupóst á netfangið info@caoz.is og verður hann þá sendur til viðkomandi.
Umhyggja og UNICEF fagna þeim góðu móttökum sem sumargjöfin hefur fengið og eru þakklát þeim mikla fjölda fólks sem hefur greitt gíróseðilinn og þannig stutt samtökin. Umhyggja og UNICEF vilja þó árétta að engum ber skylda til að greiða gíróseðilinn og þeim, sem kjósa að gera það ekki, er samt sem áður velkomið að njóta sumargjafarinnar.
Nánari upplýsingar veita:
Jón Kristinn Snæhólm, verkefnastjóri Umhyggju, sími 821 7290
Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri CAOZ, sími 821 3555

