Stofnhátíð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Næstkomandi laugardag, 7. júní, verður haldinn skemmtun af þessu tilefni í Fjölskyldu og húsdýragarðinum kl. 14:00. Ragna Marinósdóttir, formaður sjálfseignarstofnunarinnar, Biskup Íslands og Sigmundur Ernir Rúnarsson munu flytja ávörp og ýmislegt verður til gamans gert fyrir börnin. Boðið verður upp grillaðar pylsur og gos. Öllum félögum í Umhyggju og aðildarfélögum þess er boðið í garðinn og hægt verður að nálgast boðsmiða hjá Þroskahjálp, Suðurlandsbraut 22, á fimmtudag og föstudag milli kl. 08:00 - 16:00 og við innganginn á laugardaginn.
Vonandi hittumst við öll hress og kát í Fjölskyldu og húsdýragarðinum til að fagna þessum áfanga.

