Um félagið
Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag sjúkra barna og fjölskyldna þeirra. Í félaginu starfa foreldrar langveikra barna og fagfólk innan heilbrigðiskerfisins. Einnig eru félög og hópar foreldra langveikra barna í félaginu.
UMHYGGJA er fulltrúi Íslands í norrænu samtökunum NOBAB (nordisk organisation för sjuka barns behov). NOBAB gefur út tímaritið NOBAB-nytt sem eingöngu er gefið út á vefformi og er að finna á PDF-formi á framangreindri heimasíðu.
Umhyggja er einnig aðili að evrópsku samtökunum EACH (The European Association for Children in Hospital), en þau vinna bæði að bættum hag sjúkra barna og foreldra þeirra.
Helstu stefnumál Umhyggju eru m.a.:
- að veita upplýsingar um þarfir langveikra barna
- að benda stjórnvöldum á þessar þarfir
- að hvetja þau til úrbóta á aðbúnaði veikra barna
- að efla samvinnu innlendra og erlendra félaga sem hafa sambærilega stefnu
Framkvæmdastjóri
Ragna K. Marinósdóttir
Valhúsabraut 5
170 Seltjarnarnes
Heimasími: 561 2302
GSM-sími: 863 4243
Netfang: umhyggja@umhyggja.is
Heimilisfang Umhyggju er:
Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum
Háleitisbraut 13
108 Reykjavík
Sími: 552 4242
Netfang: umhyggja@umhyggja.is
Banki:
Landsbanki Íslands
Austurstræti 11
101 Reykjavík




