Styrktarsjóður Umhyggju
Styrktarsjóður Umhyggju var stofnaður í árslok 1996 með einnar milljónar króna gjöf frá Haraldi Böðvarssyni hf. Sjóðnum hafa borist margar góðar gjafir frá því hann var stofnaður, m.a. frá Zontasambandi Íslands, Golfklúbbi Ness, Sambandi íslenskra fiskframleiðenda, Bókahringrás Máls og menningar og Bókvals, Hans Petersen hf., Landsbanka Íslands, auk fjölda annarra fyrirtækja og einstaklinga.
Hlutverk Styrktarsjóðs Umhyggju er að styrkja langveik börn og fjölskyldur þeirra sem orðið hafa fyrir verulegum fjárhagsörðuleikum vegna veikindanna. Brýn þörf er á að halda áfram að efla sjóðinn svo hann geti orðið sem öflugastur og best í stakk búinn til að sinna hlutverki sínu.
Úthlutun úr sjóðnum hófst í byrjun árs 2000. Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Umhyggju eða í síma 552-4242.
Þeir sem vilja styrkja sjóðinn með framlögum geta lagt inn á eftirfarandi reikning í Landsbankanum:




