Reglur Styrktarsjóðs Umhyggju

Tilgangur Styrktarsjóðs Umhyggju
1. gr.

Styrktarsjóður Umhyggju starfar samkvæmt sérstakri skipulagsskrá sem staðfest var af dómsmálaráðuneytinu, nr. 258/1999.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja fjölskyldur langveikra barna með fjárframlagi þegar fjárhagserfiðleika má rekja til veikinda viðkomandi barns.  Fjölskyldur sem ekki hafa aðgang að styrktarsjóðum einstakra foreldrafélaga langveikra barna skulu njóta forgangs að styrkjum úr sjóðnum.  Þó fjölskylda eigi aðgang að öðrum styrktarsjóði getur hún engu að síður leitað til sjóðsins um styrk.  Styrktarnefnd er heimilt að skoða umsóknina og veita styrk að teknu tilliti til fjárhæðar þess styrks sem fjölskyldan hefur fengið úr öðrum styrktarsjóði.

Stjórn er heimilt að veita styrki úr sjóðnum til verkefna sem unnin eru í þágu langveikra barna og fjölskyldna þeirra.


Styrktarnefnd
2. gr.

Stjórn sjóðsins skal tilnefna þrjá einstaklinga í styrktarnefnd og þrjá til vara til að annast styrkveitingar úr sjóðnum.  Stjórnin skal velja í styrktarnefnd einstaklinga sem hafa sérþekkingu á málefnum langveikra barna og fjölskyldna þeirra.

Um vanhæfi styrktarnefndarmanna vegna umfjöllunar einstakra umsókna gilda almennar reglur.

Styrktarnefnd skal halda sérstaka gerðarbók um ákvarðanir sínar.


Heildarfjárhæð styrkja og fjárhæð einstakra styrkja
3. gr.

Styrkir úr styrktarsjóðnum eru veittir samkvæmt umsókn í samræmi við reglur þessar.

Heildarfjárhæð styrkja úr styrktarsjóðnum á ári hverju skal ákveðin af stjórn hans í upphafi hvers árs.  Við það mat skal hafa hliðsjón af fjárhagsstöðu sjóðsins hverju sinni og horfum um fjáröflun á komandi ári.  Heildarfjárhæð styrkja á hverju ári skal miða við 30% af peningaeign sjóðsins næstliðin áramót, en þó aldrei lægri en 5 m.kr.

Hámarksfjárhæð styrks til hverrar fjölskyldu á ári hverju skal ákvarðast af stjórn Styrktarsjóðsins í upphafi hvers árs.

Takmarkanir á styrkveitingum úr styrktarsjóði
4. gr.

Við ákvörðun styrks skal hliðsjón höfð af því hvort viðkomandi fjölskylda hefur áður fengið styrk úr sjóðnum vegna veikinda sama barns.


Hverjir geta sótt um styrk og hvernig?
5. gr.

Foreldri sem hefur langveikt barn á framfæri sínu getur sótt um styrk úr styrktarsjóðnum enda eigi viðkomandi í fjárhagslegum erfiðleikum sem rekja má til veikinda barnsins.
Skilyrði er að foreldri sé í foreldrafélagi sem er aðili að Umhyggju.  Skilyrði er og að sjúkdómi barnsins sé sinnt af foreldrafélagi sem er aðili að Umhyggju.  Ef sjúkdómi barnsins er ekki sinnt af neinu foreldrafélagi er þó heimilt að veita styrk úr sjóðnum, enda sé foreldrið félagsmaður í Umhyggju og að uppfylltum öðrum skilyrðum skv. Reglum þessum.

Umsóknir um styrk skal senda á þar til gerðum eyðublöðum til skrifstofu Umhyggju.
Með styrkumsókn skal senda eftirtalin gögn:

1. Læknisvottorð þar sem fram koma upplýsingar um sjúkdóm barn, hvenær sjúkdómur greindist, batahorfur, umönnunarþörf, sjúkrahúslegu, læknis- og lyfjakostnað og meðferðarmöguleika hér á landi.

2. Samantekt um fjárhagsstöðu (eignir, skuldir og tekjur), t.d. yfirlit þjónustufulltrúa banka.


Afgreiðsla styrkja
6.gr.

Starfsmaður Umhyggju vinnur með styrktarnefndinni, gætir þess að nauðsynleg gögn vegna styrkumsókna hafi borist og undirbýr fundi nefndarinnar.

Fundi í styrktarnefnd skal halda einu sinni í mánuði, enda liggi fyrir óafgreiddar umsóknir um styrki.  Styrktarnefnd er heimilt að veita starfsmanni Umhyggju umboð til að afgreiða styrktarumsóknir sem eðlilegt þykir að afgreiða og sem uppfylla skilyrði stofnskrár og reglna þessara án frekari umfjöllunar.

Miða skal við að styrkumsókn sé afgreidd innan sex vikna frá því að öll nauðsynleg gögn hafa borist.

Heimilt er að binda greiðslu styrks því skilyrði að hann renni beint til greiðslu vanskilaskulda umsækjanda.

Útfararstyrkir
7. gr.

Styrktarnefnd getur veitt útfararstyrki.  Stjórn sjóðsins skal ákveða fjárhæð útfararstyrks í upphafi hvers árs.


Um útfararstyrk getur sótt foreldri sem hafði langveikt barn, sem andaðist af völdum veikinda sinna, á framfæri, sbr. nánar skilyrði 1. málsgr. 5. gr.

Útfararstyrk má veita án tillits til annarra styrkveitinga úr sjóðnum til sama foreldris.  Við ákvörðun veitingar útfararstyrks skal þó taka tillit til hvort foreldrið hafi fengið útfararstyrk frá öðrum aðila.

Vegna umsóknar um útfararstyrk skal leggja fram dánarvottorð.


Aðrir styrkir
8. gr.

Stjórn styrktarsjóðsins skal í upphafi hvers árs ákveða hvort styrkja skuli á komandi ári verkefni sem unnin eru í þágu langveikra barna og fjölskyldna þeirra og þá heildarfjárhæð slíkra styrkja.

Umsóknir um styrki til verkefna í þágu langveikra barna skulu sendar stjórn sjóðsins sem ákveður styrki í samræmi við ákvarðanir stjórnar styrktarsjóðs, sbr. 1.mgr.


Reglur þessar voru samþykktar á sameiginlegum fundi fulltrúa stjórnar Umhyggju og stjórn styrktarsjóðs Umhyggju  8. mars 2004.


 

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.