Fréttir

13.1.2012 : Styrktarhlaup í Laugardalnum á mánudaginn

HlaupararLæknadagahlaupið 2012 verður haldið mánudaginn 16. janúar og rennur allur ágóði af skráningargjaldi þess í ár til Umhyggju. Hlaupa- og gönguleið hlaupsins er 5 km hringur í Laugardal (Miðnæturhlaupaleiðin). Veitt verða verðlaun fyrir fyrsta sæti í karla- og kvennaflokki og eru Nike hlaupaskór í verðlaun í báðum flokkum. Skráningargjald er 1.000 kr. fyrir 15 ára og eldri, en 500 kr. fyrir aðra. Hlaupið er öllum opið og eru þátttakendur beðnir að skrá sig á vefslóðinni www.hlaup.com. Lesa meira
 

11.1.2012 : Aðgangur að Fontana fylgir dvöl í sumarhúsinu í Brekkuskógi

fontanaÞær fjölskyldur sem dvelja í sumarhúsi Umhyggju í Brekkuskógi eiga nú kost á að fá dagpassa í Fontana á Laugarvatni. Dagpassinn gildir fyrir tvo fullorðna og fjögur börn að átján ára aldri. Hægt er að nálgast passann á skrifstofu Umhyggju, Háaleitisbraut 11-13, áður en haldið er í Brekkuskóg.

Lesa meira
 

24.10.2011 : Sérstök sýning á Algjörum Sveppa og töfraskápnum - reiðhjólin í happdrættisvinning

Algjor_sveppi_tofraskapurSérstök sýning á Algjörum Sveppa og töfraskápnum til styrktar Umhyggju verður haldin sunnudaginn 30. október kl. 12 í Kringlubíói en þá mun Sveppi mæta á sýninguna og bíómiðinn gildir sem happdrætti. Reiðhjólin sem Sveppi og félagar hjóla á á ógnarhraða í myndinni verða í vinning.

Lesa meira

 

1.4.2011 : Myndbönd frá ferðalagi Sighvats á www.visir.is

visir logoSighvatur hefur haldið úti reglulegri vefdagbók á ferðalagi sínu umhverfis heiminn og komið í loftið myndbandi á nokkurra daga fresti. Öll myndböndin má skoða á forsíðu Vísis með því að smella á tengilinn Umhverfis jörðina á 80 dögum á www.visir.is og á Facebook-síðu verkefnisins og Umhyggju (www.facebook.is/umhyggja). Fylgist með ævintýralegri för Sighvats til styrktar Umhyggju!

Lesa meira

 

22.3.2011 : Fáðu Sighvat til að senda þér eða fyrirtækinu póstkort til styrktar sumarhúsasöfnuninni!

Mynd af póstkortiAuk þess að hringja í símanúmerin 903-5001/5002/5003 er hægt að styrkja söfnun Sighvats með öðrum - og mun skemmtilegri - hætti. Hægt er að fá Sighvat til að senda sér póstkort frá framandi stað og styðja í leiðinni þetta góða málefni, sem er bygging sumarhúss fyrir langveik börn!

Póstkortin eru afgreidd með þessum hætti:

Lesa meira

 

Fréttasafn





Áskrift

Skráning á póstlista:


Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Atburðir

feb 2012
SMÞMFFL
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Greinar

: Fjórðungi bregður til fósturs

Löngu áður en austurríski munkurinn Mendel fór að rækta baunir og fylgjast með því hvernig eiginleikar erfðust milli kynslóða, höfðu forfeður okkar áttað sig á samspili erfða og umhverfis. Til merkis um það er þessi vel þekkta þula:

Fjórðungi bregður til föður.
Fjórðungi bregður til móður.
Fjórðungi bregður til fósturs.
Fjórðungi bregður til nafns.

Lesa meira

 

: Greiðslur Tryggingastofnunar vegna barna með fötlun eða langvinn veikindi

Foreldrar barna með fötlun og langvinn veikindi þekkja að ástand barnanna hefur margvísleg áhrif á aðstæður allrar fjölskyldunnar. Umönnun barnanna getur haft ófyrirsjáanleg útgjöld í för með sér og útheimt það mikið af tíma foreldranna að forsendur þeirra til tekjuöflunar minnka. Samkvæmt íslenskum lögum geta fjölskyldur sem búa við slíkar aðstæður átt rétt á greiðslum til að standa straum af umönnun barnanna. Lesa meira
 

: Hlutverk og mikilvægi tónlistar og tónlistarkennslu í lífi barna

Markmið þessa greinarkorns er að varpa ljósi á mikilvægi tónlistar og tónlistarkennslu fyrir öll börn en þó einkum þau börn sem vegna veikinda eða þroskaskerðingar glíma við skerta færni eða sérþarfir af einhverjum toga. Lesa meira
 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.