Umhyggja og aðildarfélög hennar styrkt í Reykjavíkurmaraþoninu
Margir einstaklingar leggja Umhyggju lið í Reykjavíkurmaraþoninu í ár, en tugir einstaklinga hafa valið að láta áheit sín renna til Umhyggju eða aðildarfélaga hennar í ár og eru þeim að sjálfsögðu færðar kærar þakkir fyrir. Hægt að hefur verið að heita á Umhyggju um langt skeið í Reykjavíkurmaraþoninu og hefur fé sem safnast hefur með þeim hætti til félagsins nýst því afar vel.
Hægt er að skrá sig til leiks eða heita á hlaupara á síðunni www.hlaupastyrkur.is og hægt er að heita á hlaupara fram að miðnætti mánudaginn 23. ágúst en hlaupið fer fram laugardaginn 21. ágúst.
Smelltu hér til að heita á hlaupara sem hlaupa fyrir Umhyggju.
Þrjátíu Útilegukort til úthlutunar
Útilegukortið mun í ár styrkja Umhyggju með gjöf á þrjátíu Útilegukortum, sem ráðstafað verður til fjölskyldna langveikra barna. Með Útilegukortinu geta tveir fullorðnir og fjögur börn undir sextán ára aldri gist endurgjaldslaust á 39 tjaldsvæðum vítt og breitt um landið á árinu 2010, eins lengi og tjaldsvæðin eru opin. Forsvarsmenn Útilegukortisins vonast til þess að þessi kort verði mikið notuð og þakkar Umhyggja kærlega fyrir stuðninginn.
Frábært framlag til handa Umhyggju frá Iceland Express
Orlofshús allt árið
Þroskahjálp á Suðurlandi býður félagsmönnum í Þroskahjálp, Umhyggju, Öryrkjabandalagi og hliðstæðum samtökum upp á orlofshús á Selfossi.
Gott aðgengi og sjúkrarúm. Fjögur herbergi.
Leigt í viku í senn (frá fös. kl. 16 - fös. kl. 13).
20 þúsund kr. á viku.
Lesa meira








